Lokahóf Knattspyrnudeildar Grindavíkur verður haldið laugardaginn 19. september í Eldborg í Svartsengi. Húsið opnar 19:00, borðhald hefst 20:00. Veislustjóri: Valgeir Guðjónsson, Stuðmaður með meiru. Okkar frábæri kokkur Bjarni Óla töfrar fram 3ja rétta dýrindis máltíð sem borin verður á borð.
Hin síunga skólahljómsveit Rassarnir frá Núpi í Dýrafirði með Agli Ólafssyni Stuðmanni, Rúnari Þór Péturssyni og Benedikt Benediktssyni innanborðs, með smá upprifjun í söng og tali.
Verðlaunaafhendingar fyrir meistaraflokkana okkar og 2. flokk karla.
Hljómsveitin Trap frá Ísafirði með Rúnari Þór Péturssyni og Reyni Guðmundssyni úr Saga Class ásamt félögum út hljómsveitinni BG og Ingibjörg munu leika undir á dansleik.
Fríar rútuferðir verða frá Geo hotel (gamla Festi) upp í Eldborg frá klukkan 18:30 og svo aftur til Grindavíkur að lokahófi loknu. Hægt verður að sitja inni í lobbýi hótelsins á meðan beðið er eftir fari.
Miðaverð á lokahóf og dansleik ; 5.900.-
Miðaverð á dansleik: 2.500.- einungis selt við hurð.
Hjörtur sér um miðasölu í síma 690-5268 og uppi í Gula húsi.
18 ára aldurstakmark
Stangarskot
Knattspyrnudeildin hefur einnig gefið út fréttabréfið Stangarskot.