Í gær var valið í nemendfulltrúaráðið Stuðboltana í 1.-3. bekk. Hugmyndin að baki ráðinu er að auka nemendalýðræði og gefa nemendum kost á að taka þátt í ákvörðunartökum og þannig að bæta skólabrag Grunnskóla Grindavíkur. Hver bekkur hefur einn fulltrúa í ráðinu og annan til vara og fá þeir tækifæri til að koma með hugmyndir að bættum skólabrag og betri líðan nemenda.
Nemendafulltrúaráðið ber nafnið Stuðboltarnir. Ráðið fundar 5 sinnum yfir vetrartímann og fer yfir ýmsa þætti sem viðkemur skólabrag. Ráðið mun koma með hugmyndir að því hvað verður gert á vinabekkjadegi og einnig að koma með hugmyndir fyrir friðargönguna sem er í desember. Guðrún Inga Bragadóttir náms- og starfsráðgjafi heldur utan um ráðið og sér um að rita fundargerðir og er tengiliður við skólastjórnendur og kennara. Á myndunum má sjá þegar valið fór fram í 1. M, en sá hafður er háttur á að allir sem vilja vera með draga spil og sá er hæsta spilið fær verður aðalmaður og sá næsti þar á eftir varamaður og verða þeir Adam Bjarki og Benjamín fulltrúar fyrir sinn bekk í vetur.