Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra kom til Grindavíkur þriðjudaginn 15. september og undirritaði Þjóðarsáttmála um læsi í Iðunni við Ásabraut ásamt þeim Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra Grindavíkur, Ásgeir Eiríkssyni bæjarstjóra Voga sem undirrituðu sáttmálann fyrir hönd sinna sveitarfélaga og Klöru Halldórsdóttur formanni foreldrafélags Grunnskólans.
Við athöfnina voru tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Grindavíkur, fiðlusamspil og þverflautuleikur ogIngólfur Veðurguð spilaði og söng lagið "Það er gott að lesa" eftir Bubba ásamt nokkrum stúlkum úr Grunnskólanum.
Að lokum var svo miði með undirritun sett í þar til gert hólf á sérstöku Íslandslíkani.
Samleikur á fiðlu. Nemendur tónlistarskólans stóðu sig með prýði ásamt kennurum.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri.
Gylfi, Róbert, Illugi og Klara sem undirritaði samninginn fyrir hönd Foreldrafélags Grindavíkur.
Ásgeir bæjarstjóri Voga, Illugi, Klara og Róbert.
Ingó Veðurguð spilaði og söng lag um lestur sem Bubbi Morthens samdi. Hann fékk aðstoð frá nemendum.
Renata Ívan og Telma Sif Reynisdóttir frá tónlistarskólanum með frábæran flutning.