Hreyfivikan í Grindavík hefst næsta mánudag, 21. september og er dagskráin klár. Henni verður dreift í öll hús á morgun en þeir sem vilja taka forskot á sæluna geta séð hana með því að smella á linkinn að neðan. Óhætt er að segja að dagskráin sé glæsileg því viðtökurnar við Hreyfivikunni hafa farið fram úr björtustu vonum því alls eru um 65 viðburðir á dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagana 21. til 27. september stendur yfir Hreyfvika (Move Week) í Evrópu. Grindavíkurbær tekur þátt í annað skipti. Í fyrra tókst einstaklega vel til og er óhætt að segja að undirtektirnar hafi einnig verið framar vonum í ár. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla
aldurhópa. Dagskráin er í opnunni á þessum bæklingi en dagskrá eldri borgara á baksíðu.
Tilgangur Hreyfivikunnar er að hvetja til virkrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum. Það eru samtökin International Sport and Culture Association (ISCA) sem standa fyrir verkefninu en Ungmennafélag Íslands fylgir því eftir hérlendis.
Skipuleggjendur Hreyfivikunnar í Grindavík eru frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar í samstarfi við forvarnarteymi UMFG, skóla, félög, stofnanir og ýmsa fleiri aðila sem koma að hreyfingu á einn eða annan hátt.
Það er von okkar að sem flestir íbúar Grindavíkurbæjar kynni sér það sem í boði er í Hreyfvikunni og taki þátt í einhverjum viðburðanna, skilji líka bílinn eftir heima og gangi eða hjóli í vinnuna. Vonandi getur hún einnig verið einhverjum hvatning til aukinnar hreyfingar eða þátttöku í íþróttum. Þetta er líka frábær
byrjun á Meistaramánuði sem haldinn er í
október ár hvert.
Stýrihóp Hreyfivikunnar skipa:
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri
Stefanía Sigríður Jónsdóttir, formaður forvarnarteymis UMFG
Ægir Viktorsson, þjálfari
Jóhann Árni Ólafsson, frístundal.og þjálfari
Ásrún Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi og deildarstjóri
Við þökkum kærlega öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn og boðið upp á glæsilega viðburði í Hreyfivikunni.
Vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi.
Dagskrá Hreyfiviku 21.-27. sept. 2015