Skólanum barst í gær höfðingleg gjöf frá Einhamri Seafood. Um er að ræða bekkjarsett af bókinni Má ég vera memm? eftir Hörpu Lúthersdóttur. Höfundur bókarinnar ásamt Helenu Söndru Antonsdóttur eiganda Einhamars Seafood afhentu skólanum bókina. Bókin er ætluð nemendum í 1.-4. bekk og henni fylgja kennsluleiðbeiningar. Bókin er ætluð sem umræðugrundvöllur og forvörn gegn einelti.
Helena Sandra Antonsdóttir og Stefán Kristjánsson eigendur Einhamars Seafood
Harpa Lúthersdóttir