Dagana 11.- 12. september þreyttu nemendur í 10. bekkjum námsmaraþon í skólanum. Tilgangurinn var þríþættur: í fyrsta lagi að æfa sig fyrir samræmdu prófin sem eru í lok mánaðarins, í öðru lagi að efla samkennd í hópnum og í þriðja lagi að hefja fjáröflun fyrir vorferðalag nemenda.
Nemendur voru í skólanum í einn sólarhring frá kl 8:00 á föstudegi til kl. 8:00 á laugardegi og unnu að ýmsum verkefnum undir stjórn kennarana Valdísar Kristinsdóttur og Þórðar Ólafs Þórðarssonar. Maraþonið gekk mjög vel og þakka nemendur öllum þeim sem studdu þau hvort heldur var með hvatningu eða fjárframlögum.