Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra kemur til Grindavíkur þriðjudaginn 15. september til að undirrita Þjóðarsáttmála um læsi. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkur og Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri Voga undirrita sáttmálann fyrir hönd sinna sveitarfélaga.
Dagskráin hefst kl. 15 í Iðunni við Ásabraut og eru gestir velkomnir.
Dagskrá undirritunar þjóðarsáttmála um læsi:
1.Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Grindavíkur. Fiðlusamspil.
2. Ræða mennta og menningarmálaráðherra um það bil 20 mínútur
3. Ræða Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra Grindavíkur og Ásgeirs Eiríkssonar bæjarstjóra Voga
4. Undirritun þjóðarsáttmála um læsi
5. Undirritunin sett í Íslandslíkan
6. Lagið "Það er gott að lesa" eftir Bubba. Ingólfur Veðurguð flytur.
7. Dagskrárlok.
Dagskrá lokið með þverflautuleik nemanda í Tónlistarskóla Grindavíkur