Í dag mun Vegagerðin vera í malbikunarframkvæmdum á Ránargötu. Einhverjar umferðartafir verða á þessum kafla meðan á vinnu stendur, sjá nánar á kortinu sem fylgir fréttinni. Ránargata mun lokast eitthvað meðan á framkvæmdum stendur. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi milli 08:00 og 19:00.