Vakin er athygli að síðasta tækifæri til að senda inn tilkynninga um viðburði í Hreyfivikunni rennur út kl. 12 á morgun þriðjudag. Sendið inn tilkynningu á thorsteinng@grindavik.is. Grindavíkurbær tekur þátt í Hreyfiviku (Move Week) 21.-27. sept. í samstarfi við UMFÍ. Þetta er annað árið í röð sem Grindavíkurbær er þátttakandi en svo vel þótti takast til í fyrra að UMFÍ bendir öðrum bæjarfélögum á Grindavíkurleiðina sem fyrirmynd í kynningarefni sínu í ár.
Þetta er stórskemmtilegt heilsuverkefni þar sem vonast er til að allar stofnanir bæjarins, UMFG, félagasamtök, þjálfarar, fyrirtæki og allir áhugasamir um holla hreyfingu taki þátt. Um 15 manns mætti á kynningar- og undirbúningsfund á Geohotel í morgun. Fundurinn tókst virkilega vel og er undirbúningurinn kominn á fullt og verður dagskráin í anda þeirrar sem var í fyrra sem má sjá með því að smella hér .
Allir leggja sitt af mörkum en stýrihópur heldur utan um Hreyfivikuna. Aðal atriðið er að virkja sem flesta til að vera með. Leikskólar og grunnskóli taka þátt af fullum krafti, einnig Miðgarður með dagskrá fyrir eldri borgara, UMFG verður með opnar æfingar, bjóða foreldrum að mæta og þá er ætlunin að vera með fræðslu og fyrirlestra og ýmist fleira. Þá verða fyrirtæki hvött til að vera með, bjóða jafnvel upp á heilsufarsmælingar og hvetja starfsfólk til að ganga eða hjóla í vinnuna þessa vikuna.
Markmið Hreyfiviku í Grindavík er að fá Grindvíkinga á öllum aldri til viðtækari þátttöku í hreyfingu, útivist og íþróttum.
Verkefnateymi:
1. Þorsteinn Gunnarss sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
2. Stefanía S. Jónsdóttir, forstöðukona Miðgarðs og formaður forvarnarteymis UMFG
3. Ægir Viktorsson þjálfari
4. Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi og þjálfari
5. Ásrún Kristinsdóttir bæjarfulltrúi og deildarstjóri í Hópsskóla.
Dagskrá Hreyfivikunnar verður send í öll hús í Grindavík fimmtudaginn 17. sept. Einnig kynnt á heimasíðum og samfélagsmiðlum.
Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna má sjá hér: http://www.iceland.moveweek.eu/#mce_temp_url#