Í vetur verða æfingar hjá Barnakór Grindavíkur á fimmtudögum kl. 14. í Tónlistarskólanum.
Strákar og stelpur í 4. 5. og 6. bekk sem hafa gaman af söng eru velkomin í þennan skemmtilega félagsskap.
Kórstjórar eru Rósalind Gísladóttir og Bjartur Logi Guðnason
Skráning er á heimasíðu Tónlistarskólans/umsóknir eða í síma 420-1130
Barnakór Grindavíkur er samstarfsverkefni Tónlistarskólans í Grindavík, Grindavíkurkirkju, Grunnskóla Grindavíkur og Grindavíkurbæjar.