Skákæfingar eru á miðvikudögum klukkan 14:50 í stofu 207 á Ásabrautinni. Allir nemendur miðstigs og unglingastigs eru velkomnir. Siguringi Sigurjónsson skákkennari hefur umsjón með klúbbnum sem heitir hinu skemmtilega nafni „Hermenn Þorbjarnar" og er það vísun í einkennisfjall Grindavíkur.
Fyrirhugað er metnaðarfullt starf í vetur og hafa meðlimir skákklúbbsins tækifæri til að keppa á hinum ýmsum skákmótum bæði hér í Grindavík og víðar.