Þær hafa yljað okkur með skemmtilegri knattspyrnu í sumar Grindavíkurstelpurnar. Þrátt fyrir að hafa aðeins tapað einum leik er það grátleg staðreynd að þær komust ekki upp í úrvalsdeildinni eftir að hafa þurft að lúta í gras í undanúrslitunum fyrir ÍA. Þrátt fyrir 2-1 sigur í seinni leiknum dugði það ekki til því fyrri leikurinn á Akranesi tapaðist 3-0.
Grindavíkurliðið er skemmtilega blanda af bráðefnilegum stúlkum og svo reynslumeiri leikmönnum. En hópurinn var ekki stór og líklega var það liðinu að falli í lokin í úrslitakeppninni. Þá var fyrirkomulagið í 1. deildinni í sumar hreint út sagt alveg galið og þarf að breyta því fyrir næsta sumar.
Þrátt fyrir að hafa ekki komist upp að þessi sinni er þetta sannarlega eitthvað til að byggja ofan á og engin spurning að stefna á úrvalsdeildina næsta sumar. Takk kærlega fyrir skemmtilegt sumar stelpur.