Dagana 11.- 12. september ætla nemendur í 10. bekkjum að þreyja námsmaraþon í skólanum. Tilgangurinn er þríþættur: í fyrsta lagi að æfa sig fyrir samræmdu prófin sem eru í lok mánaðarins, í öðru lagi að efla samkennd í hópnum og í þriðja lagi að hefja fjáröflun fyrir vorferðalag nemenda. Nemendur ætla að vera í skólanum í einn sólarhring og vinna að ýmsum verkefnum undir stjórn kennara.
Foreldrar og gestir eru velkomnir í heimsókn til að aðstoða eða styrkja, söfnunarbaukur ætlaður framlögum mun liggja frammi. Nemendur hyggjast ganga í hús og leita eftir stuðningi. Skólinn vonast til að bæjarbúar taki börnunum okkar vel.