1390. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 8. september 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1508176 - Rekstraryfirlit janúar - júní 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti frávikagreiningu í rekstri fyrir fyrstu 6 mánaði ársins 2015, ásamt skýringum sviðsstjóra á frávikum frá áætlun. Rekstarniðurstaða er nokkuð í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2015.
2. 1509014 - Deiliskipulagsvinna: Beiðni um viðauka ársins 2015
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram, þar sem óskað er eftir viðauka að fjárhæð 2.500.000 kr. vegna vanáætlunar á kostnaði við skipulagsvinnu á árinu 2015.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 2.500.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
3. 1509034 - Félagsleg leiguíbúð: kauptilboð
Leigjendur íbúðar 010203 að Staðarhrauni 24a leggja fram kauptilboð í íbúðina með vísan til ákvæðis til bráðabirgða í reglum Grindavíkurbæjar um framkvæmd sölu félagslegra íbúða.
Tilboðið er í samræmi við verðmat Fasteignasölu Suðurlands.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita kauptilboðið og leggja kaupsamning fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
4. 1509011 - Kjarasamningar: Viðauki við fjárhagsáætlun 2015
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram þar sem gerð er grein fyrir áhrifum kjarasamningsbreytinga á launaáætlun ársins 2015. Farið er fram á viðauka að fjárhæð 1.454.000 á launaliði grunnskólans. Viðaukinn er fjármagnaður með færslu á fé af lið 2111 að fjárhæð 1.142.000 og mismunurinn að fjárhæð 312.000 kr. kemur til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
5. 1508186 - Lóðarleigusamningur: Beitiland í eigu Grindavíkurbæjar
Stefán Kristjánsson óskar eftir að gera leigusamning um 118.786,6 m2 lóð til ræktunar og beitar. Stefán hefur unnið að ræktun landsins síðan 2007 og nýtt til beitar frá 2009.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samningaviðræðna.
6. 1509035 - MSS: Ársskýrsla og ársreikningur 2014
Ársskýrsla og ársreikningur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum fyrir árið 2014 lögð fram.
7. 1509015 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum: Fundarboð
Fundarboð á aðalfund Sambands sveitarfélaga sem fram fer 2. og 3. október lagt fram. Bæjarfulltrúar Grindavíkurbæjar hafa seturétt og eru hvattir til að mæta.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:20.