Gott er að vera í hóp og vinna saman. Annar bekkur blandast saman þá daga sem sundkennsla fer fram því þá fara börnin í ákveðnum hópum saman í sund. Á meðan eru aðrir hópar á mismunandi stöðvum,
þar sem unnin eru meðal annars verkefni í: stærðfræði, íslensku, uppbyggingarstefnunni og upplýsingatækni. Skipulag sem þetta eykur samveru á milli bekkja og skapar góða tilbreytingu í skólastarfinu.