Við greindum frá því fyrir helgi að stelpurnar í meistaraflokki hefðu ákveðið að láta gott af sér leiða og settu sektarsjóð sumarsins í gott málefni, en þær hétu á Petru Rós Ólafsdóttur, stjórnarmann í kvennaráðinu, sem hljóp til styrktar FAAS í Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðinn laugardag. Strákarnir í meistaraflokki gátu ekki verið minni menn og settu sinn sjóð líka í gott málefni, en þeir hétu á Sverri Tý Sigurðsson sem hljóp fyrir félagið Einstök börn.
Sverrir hljóp ásamt móður sinni, Birgittu Káradóttur, og saman hafa þau náð að safna yfir 100.000 krónum fyrir Einstök börn, og er meistaraflokkur karla í Grindavík þeirra stærsti bakhjarl. Enn er hægt að leggja söfnuninni lið með því að smella hér.