Starfshópurinn í Grunnskóla Grindavíkur hefur mikinn áhuga á að þróa starfsemi skólans í átt að því besta sem gerist í íslenskum grunnskólum. Þetta þýðir að reglulega gerum við ýmsar breytingar á fyrirkomulagi og/eða innihaldi námsins, þetta má meðal annars sjá í stundaskrá skólans í ár. Þetta gerum við til að gera námið og umhverfið sem það fer fram í, bæði gagnlegra og betra fyrir nemendur okkar. Við væntum þess að breytingarnar bæti starfið í skólanum, en við erum líka við því búin að einhverjar breytingar skili ekki þeim framförum sem við horfum til.