Kæru Grindvíkingar, vinsamlegast athugið eftirfarandi. Sorpgámar á hafnarsvæði Grindavíkurhafnar eru eingöngu ætlaðir fyrir sorpmóttöku úr bátum og skipum sem koma til hafnar í Grindavík. Grindavíkurhöfn greiðir hæsta mögulega gjald til Kölku vegna þess að sorpið kemur að mestu óflokkað úr skipum. Grindavíkurhöfn getur ekki sent reikning fyrir þvottavélum, sjónvörpum eða gömlum húsgögnum áfram á viðskiptavini sína.
Á hafnarsvæðum Grindavíkurhafnar eru eftirlitsmyndavélar. Þeir sem verða uppvísir að því að henda sorpi án heimildar í gáma Grindavíkurhafnar geta á það á hættu að fá heimsendan reikning með hæsta leyfilega taxta hafnarinnar sem getur skipt tugum þúsunda króna.
Vinsamlegast snúið ykkur að Gámasvæði Kölku þar sem móttaka sorps er oft á tíðum gjaldfrjáls t.d. á raftækjum.
Opnunartíma móttökusvæðis Kölku í Grindavík Nesvegi 1
Alla virka daga 17:00-19:00
Laugardaga 12:00-17:00
Með vinsemd,
Sigurður Arnar Kristmundsson
hafnarstjóri