Allt útlit er fyrir að fyrsta lægð haustsins verði snemma á ferðinni þetta árið, en Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna vegna lægðar sem gengur yfir landið á morgun: „Búast má við hvassviðri eða stormi við suður- og suðvesturströndina eftir hádegi á morgun og á miðhálendinu. Búast má við vindhviðum allt að 35 m/s við fjöll á þeim slóðum. Ekkert ferðaveður verður því fyrir bifreiðar með aftanívagna og einnig er ráðlagt að huga að tjöldum og lausamunum.“
Í tilkynningu frá björgunarsveitinni Þorbirni á Facebook síðu hennar segir:
„Á morgun er sérstakur trampólín dagur hjá björgunarsveitinni Þorbirni en þá fær fólk tækifæri til þess að sjá trampólín í ýmsum stærðum og gerðum fjúkandi um plássið svona ef ekki er vel að gáð. Að gefnu tilefni viljum við vara fólk við hvassviðri um og uppúr hádegi á morgun og hvetja fólk í leiðinni til þess að huga að lausamunum eins og garðhúsgögnum og grillum
... og trampólínum.“