Foreldrar barna sem eru ađ fara í 1. bekk geta nú sótt um í Skólasel rafrćnt

  • Fréttir
  • 6. ágúst 2015

Vegna tæknilegra mistaka var ekki búið að opna á árgang 2009 í umsóknum um skólasel í Íbúagáttinni. Úr því hefur nú verið bætt og hægt er að sækja um fyrir börn sem eru á leið í 1. bekk. Sækja þarf um vistun fyrir 20. ágúst en þar sem að bekkjarlistar eru ekki tilbúnir þarf að setja X í bekkjarreitinn í umsókninni. Bekkjarlistar verða tilbúnir 12. ágúst.

Til þess að tryggja vistun í Skólaseli skólaárið 2014-2015 þarf umsókn að berast í gegnum íbúagátt Grindavíkurbæjar fyrir 20. ágúst 2014. Sækja þarf um lágmark þrjá daga og þarf vistunartíminn að vera sá sami.

Hægt verður að kaupa 15. mínútur yfir heila tímann. Gjaldskrá er inn á íbúagátt/Skólasel. Greiða þarf fyrirfram. Boðið er upp á miðdagshressingu eftir klukkan 14:15 og kostar hún 170 kr. fyrir hvern dag vistunar. Ef foreldrar ætla segja upp vistun þarf að láta umsjónarmann vita minnst 15. dögum fyrir mánaðamót. Allar upplýsingar fást hjá Sigurbjörgu umsjónamanni Skólasels í síma 6607321 eða á póstfangið sigurbjorg@grindavik.is eftir 12. ágúst.

Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir nemendur í 1. - 3. bekk. Þar gefst foreldrum tækifæri til að lengja veru barna sinna í skólanum eftir að kennslu lýkur til kl. 16:15 eða til kl: 17:00 ef lágmark 10 börn eru skráð að þeim tíma.
Markmið starfsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins, foreldra og atvinnulífs með því að skapa börnunum öruggan og notalegan samastað að skóla loknum. Dagurinn skiptist í frjálsan leik úti og inni og skipulagt starf svo sem föndur, leiki ofl. Lögð er áhersla á friðsamleg og jákvæð samskipti barna og fullorðinna og að dvölin geti verið lærdómsrík og skemmtileg.

Lokað er í vetrar- jóla- og páskafríi einnig á árshátíðardegi og vorgleði. Á öðrum skóladögum, þar sem vikið er frá venjulegu skipulagi s.s. á öskudegi og þemadögum opnar Skólasel um leið og dagskrá lýkur. Lokað verður á starfsdögum í vetur.

Íbúagátt Grindavíkurbæjar (vefslóð)

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir