Málningarteymi Vinnuskólans ákvað að setja traust sitt á veðurspána í morgun og gekk í það verk að mála leiktækin við báðar starfsstöðvar Grunnskólans. Verkinu miðar vel og hefur hvert leiktækið á fætur öðru fengið andlitslyftingu og nauðsynlegt viðhald. Rétt er að benda foreldrum á að leiktækin eru nú flest nýmáluð og sennilega skynsamlegt að börn séu ekki að leika sér í þeim næstu klukkutímana.