Laus störf við Grunnskóla Grindavíkur

  • Stjórnsýsla
  • 6. júlí 2015

Grunnskóli Grindavíkur óskar eftir kennurum og þroskaþjálfa til starfa næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til 20. júlí en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst. Í Grunnskóla Grindavíkur eru lausar stöður íþróttakennara, heimilisfræðikennara og þroskaþjálfa. Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með um 470 nemendur í tveimur starfsstöðvum.

Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Í framtíðarsýn skólans kemur fram að skólinn er lærdómssamfélag þar sem áhersla er á að allir nemendur hljóti góða menntun og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Nemendur, starfsfólk og foreldrar eru virkir þátttakendur í lærdómssamfélaginu.

Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans

• Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
• Starfsmenn Grindavíkurbæjar hafa sett sér eftirfarandi gildi sem unnið er eftir í starfsemi bæjarins, þau eru jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið halldorakm@grindavik.is

Nánari upplýsingar veitir Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri í síma 660-7330.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum