Þann 1. júlí skipti Grindavík.is yfir í sumartíma. Í þeirri breytingu felst fyrst og fremst það að fréttaflutningur á síðunni verður keyrður í lága drifinu til mánudagsins 20. júlí. Þeir sem þurfa nauðsynlega að koma efni á framfæri á síðunni er bent á að senda póst á heimasidan@grindavik.is en gera það með góðum fyrirvara þar sem að afgreiðslufrestur gæti orðið öllu lengri en menn eiga að venjast.
Gleðilegt sumar!