Í dag, 29. júní 2015, eru 35 ár liðin frá því að Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna til að verða þjóðkjörin forseti, og 100 ár frá því konur hér á landi fengu kosningarétt. Af þessu tilefni hafa á fjórða tug félagasamtaka og stofnana, þar á meðal Skógræktarfélag Íslands, tekið höndum saman og efndu til hátíðardagskrár sunnudaginn 28. júní.
Skógrækt, landgræðsla og náttúruvernd hafa verið Vigdísi afar hugleikin og hefur hún haldið þeim málefnum á lofti á opinberum vettvangi. Vigdís tók snemma í forseta tíð sinni upp þann sið að gróðursetja þrjú tré á þeim stöðum sem hún heimsótti - eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir.
Vigdís er heiðursfélagi í Skógræktarfélagi Íslands
Í samvinnu við Grindavíkurbæ voru af þessu tilefni sett niður þrjú tré, af pilti, stúlku og fulltrúa elstu kynsslóðarinnar. Trén voru gróðursett í minningarlund sem staðsettur verður í fyrirhuguðum Sjómannagarði milli Hafnargötu og Mánagötu.
Trén þrjú eru birkitré af hinu beinvaxna og hvítstofna yrki 'Emblu' sem er afurð kynbótastarfs áhugasamra manna undir forystu Þorsteins Tómassonar. Trén eru hátt á annan metra að hæð og verða án efa til mikillar prýði í minningarlundinum.
Fulltrúar okkar voru Flóvent Rigved Adhikari, Arna Rún Reynisdóttir og Hildur Sigurðardóttir.