Ert ţú á leiđ á Ţorbjörn? Gestabókin ţarf ađ komast upp

  • Fréttir
  • 25. júní 2015

Þorbjarnarfellið okkar fagra er orðin ein vinsælasta útivistarparadís Reykjaness. Á hverjum degi streymir fólk upp og niður hlíðar þess í tugatali og nýtur útivistar, hreyfingar og frábærs útsýnis til allra átta, þó sérstaklega til suðurs. Göngufólk hefur þó án vafa saknað gestabókarinnar góðu undanfarið en nú er búið að gera við kassann undir hana og bókin þarf að komast aftur upp og á sinn stað.

UMFG auglýsir á Facebook eftir fari upp fyrir bókina. Ef þú ert á leiðinni upp í dag hafðu endilega samband við hana Höddu í síma 775-9568 og kipptu bókinni með þér upp!

Uppfært 16:23: Bókin er farin af stað, þökkum skjót viðbrögð!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir