Í Grindavík er alltaf nóg um að vera. Við hér á Grindavík.is viljum endilega að sem flestir viti af því ef eitthvað er um að vera, hvort sem það eru tónleikar, íþróttaviðburðir, fundir eða aðrar skemmtanir. Viðburðadagatalið hér hægra megin á síðunni er oftast smekkfullt af skemmtilegum og áhugaverðum viðburðum og þó svo að við séum með eyru víða þá getum við því miður ekki alltaf verið allsstaðar. Ef þú ert að skipuleggja opinn viðburð og vilt koma honum á framfæri, sendu okkur línu á heimasidan@grindavik.is og við bætum þér í dagatalið.