Eins og við greindum frá í gær eru krakkarnir í Hjólakrafti að taka þátt í WOW Cyclothoninu þar sem hjólað er hringinn í kringum landið og áheitum safnað. Alls hjólar hvert lið 1.358 km og miðar okkar fólki vel, en þau eru að nálgast Akureyri þegar þetta er skrifað. Ferðalag hópsins hófst kl. 18:00 í gær og hægt er að fylgjast nákvæmlega með hvar liðin eru stödd á Live.at.is
Við heyrðum í Hildigunni Árnadóttur um 11 leytið í morgun en hún er í liði Hjólakrafts 4 og milli þess sem hún hjólar situr hún undir stýri á gömlum Benz húsbíl sem rúllar með hópnum landshluta á milli. Að hennar sögn hefur ferðin gengið ótrúlega vel og krakkarnir standa sig eins og hetjur. Liðsmenn eru paraðir saman og hjólar hvert par í klukkutíma í senn og hvor þátttakandi í korter í einu. Eftir það tekur við fjögurra tíma hlé sem flestir nýta til hvíldar og að safna orku fyrir næsta sprett.
Veðrið fyrir norðan ku vera alveg yndislegt, hlýtt og stillt og ilmurinn af sumrinu er allt um lykjandi. Hægt er að heita á hópana á heimasíðu keppninnar. Hópur 3 er hér og hópur 4 hér.