Hjólakraftur í WOW Cyclothon - Áheitanúmerin eru 1140 og 1141

  • Fréttir
  • 22. júní 2015

Hjólakraftur tekur þátt í WOW Cyclothon sem er hjólreiðakeppni á Íslandi þar sem hjólað er með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland. Keppnin í ár fer fram dagana 23.-26. júní. Í ár er hjólað til styrktar uppbyggingar Batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi. Uppistaðan í Hjólakrafti eru krakkar frá Grindavík og eru áheitanúmer hópsins 1140 og 1141 en þessi frábæri hópur tók þátt í Bláa Lóns þrautinni í síðustu viku og stóð sig virkilega vel. Nú ráðast þau í þetta risa verkefni, að hjóla hringinn í kringum landið. 

Grindvíkingar eiga svo marga fulltrú í Hjólakrafti að þeir dreifast í tvö lið:

Liðsmenn Hjólakrafts 3

Arnar Kristinsson
Daði Ragnarsson
Sveina Björt Kristbjargardóttir
Ingvar Björn Pálsson
Sigurður Ágúst Eiðsson
Ragnar Auðun Vilbergsson
Gunnar Páll Leifsson
Birgitta Sigurðardóttir
Sölvi Tryggvason
Vilberg Helgason

Liðsmenn Hjólakrafts 4

Guðmundur Ásgeir Sigurfinnsson
Kjartan Árni Steingrímsson
Guðbjörg Ylfa Hammer
Björg Þóra Sveinsdóttir
Katla Sif Gylfadóttir
Stephanie Júlía Þórólfsdóttir
Ólafur J Stefánsson
Hildigunnur Árnadóttir
Steingrímur E Kjartansson
Birkir Friðfinnsson

Með krökkunum hjóla einnig Þorvaldur Daníelsson þjálfari og fleiri fylgjendur og stuðningsmenn.

Hjólakraftur hvetur alla til að heita á liðin en allar upplýsingar er hægt að finna hér á heimasíðu keppninnar.



Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!