Met ţátttaka í Jónsmessugöngu í blíđskapar veđri

  • Fréttir
  • 22. júní 2015

Met þátttaka var í Jónsmessugöngu Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar síðastliðið laugardagskvöld en talið er að um og yfir þrjú hundruð manns hafi mætt að þessu sinni. Veðrið var eins og best verður á kosið, sól og stilla. Safnast var saman við íþróttahúsið og svo gengið fylktu liði eftir Ingibjargarstíg og upp á Þorbjarnarfell þar sem Eyþór Ingi tónlistarmaður sá um brekkusöng og kveikt var í varðeldi. 

Eftir notalega stund á fjallinu var gengið niður norðan megin niður í Selskóg og þaðan eftir Orkustíg í Bláa Lónið þar sem gestir gátu baðað sig fram að miðnætti í þessu frábæra veðri.

Göngustjóri var Þorsteinn Gunnarsson. Björgunarsveitin Þorbjörn sá um öryggisgæslu á svæðinu.

Göngugarpar streyma að Þorbjarnarfelli.

Þessi krakkar tóku lagið með Eyþóri Inga.

Það var létt yfir mannskapnum.

Göngugestir voru á öllum aldri.

Glæsilegur brekkusöngur í ótrúlega fallegum umhverfi og skemmtilegri birtu.

Eyþór Ingi fór á kostum.

Gengið niður Þorbjarnarfell og í Selskóg.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!