Landsleikur á Grindavíkurvelli - Knattţrautir, hoppukastali og grillveisla

  • Fréttir
  • 18. júní 2015

Undankeppni EM U17 kvenna hefst á mánudag og eru leikstaðirnir þennan fyrsta leikdag Grindavíkurvöllur og Kópavogsvöllur. Ísland leikur þá sinn fyrsta leik í Grindavík, gegn Þýskalandi, og hefst hann kl. 19:00. Kl. 13:00 á mánudaginn mætast England og Spánn, einnig á Grindavíkurvelli. Fyrir hvern einasta leik í mótinu verður boðið upp á knattþrautir, hoppukastali verður á staðnum, veggspjöld af landsliðum karla og kvenna og hver veit nema okkar fremsta knattspyrnufólk verði á staðnum sömuleiðis til að árita myndir. Hálftíma fyrir leik verður svo boðið upp á grillaðar SS pylsur í brauði frá Hérastubbi bakara og ávaxtasafa í boði Vífilfells.  

Þá gefst áhorfendum kostur á að vinna miða á landsleiki hjá A-landsliðum karla og kvenna. Það eina sem þarf að gera er að mæta og skrifa nafn sitt á miða, setja miðann í kassa sem verður á staðnum og fylgjast með leiknum. Tilkynnt verður um vinningshafa á meðan á leik stendur.

Leikdagarnir í riðlakeppninni eru 22. júní, 25. júní og 28. júní.

Allt um mótið á sérvef


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir