Vísir hélt uppá 50 ára afmæli sitt um Sjómannadagshelgina með veglegum hætti. Á Sjómannadeginum var opið hús þar sem gestum var boðið að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins og boðið var uppá veitingar úr afurðum fyrirtækisins. Viðburðirnir sem fyrirtækið stóð fyrir voru vel sóttir og gaman að sjá svona öflugt fyrirtæki taka þátt í bæjarhátíðinni á svona skemmtilegan hátt. Óskum við Vísi að sjálfsögðu til hamingju með afmælið og vonum að önnur blómleg 50 ár séu framundan.
Eftirfarandi frétt birtist á heimasíðu Vísis um afmælið:
„Fjölmennt var á opnu húsi Vísis á sjómannadaginn í tilefni af 50 ára afmæli fyrirtækisins þar sem gestir og gangandi skoðuðu fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda og starfsmanna. Gestum var boðið að smakka dýrindis fiskrétti eldaða úr afurðum Vísis við undirleik lifandi tónlistar auk þess sem Vísiskórinn tók nokkur lög við mikinn fögnuð gestanna.
Einnig var skrifað undir 3 ára styrktarsamning við Björgunarsveitina Þorbjörn þar sem Vísir styrkir björgunarsveitina um 3 milljónir króna á ári. Í tilefni af afmælinu færði Vísir einnig björgunarsveitinni 700.000 kr peningagjöf fyrir kerru undir nýja bátinn. Björgunarsveitin var afar ánægð með samninginn og gjöfina og þakkaði fyrirtækinu ómetanlegan stuðning.
Að kvöldi sjómannadags voru svo haldnir Minningartónleikar um Palla og Möggu, stofnendur Vísis, þar sem börn þeirra fluttu lög af geisladiskum sínum "Lögin hennar mömmu" og "Lögin hans pabba". Hljómdiskarnir voru til sölu um helgina og seldust mjög vel en allt andvirði sölunnar rennur til Grindavíkurkirkju.
Landskunnir hljóðfæraleikarar undir stjórn Vilhjálms Guðjónssonar spiluðu með systkinunum á tónleikunum ásamt góðum gestasöngvurum. Gestasöngvarar voru barna- og barnabarnabörn Palla og Möggu, Agnar Steinarsson og sjálfur konungur sjómannalaganna Ragnar Bjarnason.
Kirkjan var troðfull út að dyrum og skemmtu tónleikagestir sér konunglega og sungu með af innlifun undir lokin.“
Sjónvarp Víkurfrétta gerði afmælinu góð skil í síðasta þætti ásamt Sjóaranum síkáta: