1384. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 9. júní 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Formaður leitar heimildar til að bæta tveimur málum á dagskrá með afbrigðum.
Miðgarður: Endurnýjun
Fundargerð: 250. fundur stjórnar HES
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. 1506028 - Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Fyrstu drög að staðgreiðsluáætlun 2016 lögð fram.
2. 1504110 - Fráveita Grindavíkurbæjar: Gjaldskrá
Tillaga að gjaldskrá Fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa.
3. 1503144 - Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Tillaga að endurnýjuðum samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur lögð fram. Frístunda-og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur, en hann gildir 31.12.2018 og leysir af tvo eldri samninga.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita.
4. 1503143 - Hestamannafélagið Brimfaxi: Barna- og unglingastarf
Tillaga að endurnýjuðum samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og Hestamannafélagsins Brimfaxa lögð fram. Frístunda-og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur, en hann gildir 31.12.2018.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita.
Til að fjármagna samninginn samþykkir bæjarráð viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 1.130.000 kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
5. 1506038 - Greinargerð um lögsögumörk Grindavíkurbæjar
Frá árinu 2009 hefur Réttur lögmannsstofa unnið að greinargerð um lögsögumörk Grindavíkurbæjar í tengslum við aðalskipulagsgerð sveitarfélagsins. Bæjarstjóri leggur til að Rétti lögmannsstofu verði falið að ljúka greinargerðinni, en umfjöllun um svæði Varnarliðsins og merkjum við Krýsuvík er ólokið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla uppslýsinga um kostnað við verkefnið og leggja erindið aftur fyrir bæjarráð.
6. 1506037 - Viljayfirlýsing um Melhólabraut 2: ósk um framlengingu
Alice Algae Iceland ehf. óskar eftir því að viljayfirlýsing um lóð að Melhólabraut 2 fyrir þörungaframleiðslu verði framlengd.
Bæjarráð samþykkir að framlengja viljayfirlýsinguna um eitt ár og felur bæjarstjóra að undirrita.
7. 1504031 - Miðgarður: Endurnýjun
Hafnarstjórn leggur til að hafnarstjóra í samvinnu við bæjarstjóra verði falið að semja umsögn við þingsályktunartilögu samgönguáætlunar 2015 - 2018 til að leggja fyrir umhverfis - og samgöngunefnd Alþingis.
Bæjarráð tekur undir með hafnarstjórn og felur hafnarstjóra og bæjarstjóra að semja umsögn. Grindavíkurbær hefur um árabil lagt megináherslu á að endurgerð þils við Miðgarð í Grindavíkurhöfn verði í forgangi samgönguáætlunar og leggur áherslu á að endurgerð Miðgarðs verði sett á Samgönguáætlun 2015-2018.
8. 1502076 - Fjölmenningarstefna: vinna verkefnishóps
Fundargerð 1. fundar lögð fram.
9. 1506034 - Fundargerð: 4. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
Fundargerðin er lögð fram.
10. 1506036 - Fundargerð: Aðalfundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2015
Fundargerðin er lögð fram.
Bæjarráð hvetur umhverfisnefnd til að fjalla um möguleika á flokkun sorps og sorpeyðingu í Grindavík og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
11. 1506035 - Samtök sjávarútvegssveitarfélaga: Fundargerð 19. og 20. fundar
Fundargerðir 19. og 20. fundar lagðar fram.
12. 1506032 - Fundargerð: 250. fundur stjórnar HES
Heilbrigðisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá vegna útseldrar sérfræðivinnu Heilbrigðiseftirlitsins verði hækkuð, sbr. 3. liður dagskrár fundarins.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar staðfestir þá hækkun fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.