Talsverðar breytingar urðu á stjórn UMFG á aðalfundi þess í gærkvöldi sem haldinn var í nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu í nýja íþróttamannvirkinu við Austurveg. Gunnlaugur Hreinsson lét af störfum sem formaður UMFG en í hans stað var Sigurður Enoksson kjörinn nýr formaður en hann var einn í framboði.
Gunnlaugur hefur verið ötull forystumaður í íþróttahreyfingunni í Grindavík í áratugi og voru honum þökkuð góð störf fyrir UMFG.
Alls buðu fimm einstaklingar sig fram í fjögur sæti í aðalstjórn og því þurfti að kjósa á milli þeirra. Kjartan Fr. Adólfsson, Guðmundur Bragason, Rúnar Sigurjónsson og Bjarni Már Svavarsson voru kjörnir í stjórnina. Í varastjórn voru kosnir Gunnlaugur, Magnús Andri Hjaltason og Jón Þór Hallgrímsson.
Rekstur og starfsemi UMFG á síðasta starfsári gekk vel. Unnið hefur verið að margvíslegum verkefnum til að efla innra starf félagsins. Mesta framfaraskrefið felst í nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu sem mun án efa gjörbylta starfsemi félagsins. Þá verður ráðinn íþróttafulltrúi í hlutstarf í haust til að efla innra starfið enn frekar.
Sérstakur gestur fundarins var Auður Inga Þorsteinsdóttir, nýr framkvæmdastjóri UMFÍ og flutti hún fundarmönnum kveðju frá stjórn UMFÍ.
Myndirnar eru frá aðalfundinum í gærkvöldi.
Sigurður Enoksson, nýr formaður UMFG.