Skólaskrifstofa Grindavíkur í samstarfi við Grunnskóla Grindavíkur og stjórn foreldrafélags grunnskólans bjóða foreldrum til fundar fimmtudaginn 11. júní nk. frá kl. 17:00 - 19:30 í nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu UMFG við íþróttahús Grindavíkur. Gengið inn um aðalinngang.
Yfirskrift fundarins er: Sýn foreldra á skólastarfið - Viltu hafa áhrif?
Tilefni fundarins eru að kynna niðurstöður könnunar Skólapúlsins á viðhorfum foreldra til grunnskólans sem lögð var fyrir í febrúar sl. og kalla eftir hugmyndum foreldra til að efla samstarfið. Könnunin er hluti af ytra mati sveitarfélagsins á gæðum skólastarfsins og ber sveitarfélaginu að fylgja eftir ytra mati þannig að það leiði til umbóta.
Niðurstöður könnunarinnar draga fram styrk- og veikleika skólans að mati foreldra. Það er mikilvægt að í samfélaginu okkar ríki traust og jákvætt viðhorf til skólans og skólastarfsins. Markmiðið með fundinum er að hlusta á foreldra og eiga samtal við þá um hvaða hugmyndir þeir hafa til að bæta þá þætti sem þeir telja til veikleika skólans.
Dagskrá:
Kynning niðurstaðna viðhorfskönnunar foreldra
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Æskileg þátttaka foreldra í skólastarfi
Kristín Jónsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ
Kaffihlé, súpa og brauð
Hugmynda- og stefnumótunarvinna
Sævar Kristinsson, sérfræðingur hjá KPMG
Fundarlok
Þær hugmyndir sem fram koma á fundinum verða nýttar við gerð umbótaáætlunar af hálfu skólans sem fyrirhugað er að liggi frammi í upphafi næsta skólaárs. Í umbótaáætlun skulu tilgreindir þeir þættir sem þarfnast umbóta við, skýr markmið, leiðir að markmiðum, ábyrgð á eftirfylgd og hvenær umbótum skuli lokið. Þá ber að tilgreina í umbótaáætlun með hvaða hætti skuli metið hvort umbætur hafa náð fram að ganga.
Með þessum hætti er hægt að setja fram raunhæfa áætlun sem miðar að umbótum í einstökum þáttum skólastarfsins. Foreldrar eru ein mikilvægasta stoð skólasamfélagsins og eiga að hafa áhrif á skólastarfið. Láttu ekki þitt eftir liggja.