Knattspyrnuskóli UMFG verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða fjögur viku námskeið í júní og þrjú viku námskeið í ágúst.
Á námskeiðunum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa einfaldlega að mæta og skrá sig.
Námskeiðin eru:
8.júní - 12.júní
15.júní - 19.júní
22.júní - 26.júní
29.júní - 3.júlí
4.ágúst - 7.ágúst
10.ágúst - 14.ágúst
17.ágúst - 21.ágúst
Eldri fyrir hádegi (5.bekkur- 8.bekkur) kl.10.00
Yngri eftir hádegi (1.bekkur-4.bekkur) kl.13.00
Skráning á námskeiðin hefjast vikuna 1. - 5. júní í Gulahúsi.
Verð á námskeið er 2.500 kr.
Þátttakendum verður svo boðið á veglega lokahátíð knattspyrnuskólans í lok sumars.
Umsjón með skólanum hafa Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Grindavíkur, Sara Hrund Helgadóttir leikmaður m.fl. kvenna, Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl kk og 3.fl. kk auk annarra gestaþjálfara.
ATH! Skráning á staðnum