Sumarlestur og -opnunartími bókasafns
- Bókasafnsfréttir
- 29. maí 2015
Frá og með næsta mánudegi, 1. júní, er bókasafnið opið frá kl. 12.30 til 18.00.
Þið getið lesið allar uppáhaldsbækurnar ykkar í sólinni hvenær sem ykkur hentar því við lokum ekki í sumar!
Við minnum líka á sumarlestur fyrir 6-12 ára börn sem hefur verið fastur liður á safninu mörg undanfarin ár, til að hvetja þau til að halda kunnáttu sinni við og þjálfa lestur enn frekar.
Í ár verður sumarlesturinn tvískiptur, þ.e.a.s. 1.-3. bekkur og 4.-6. bekkur.
Tilhögun á sumarlestri árið 2015:
- Hefst 8.júní og lýkur 31.júlí, en tekið verður við bókum og umsögnum út ágúst.
- Börnin skrá sig og fá afhenta lestrardagbók, sem þau skrifa umsögnina í heima – með stuðningi foreldris og taka hana með sér á safnið og fá stimpil, þegar bók er skilað.
- Þemað í sumar verða fiðrildi – þau fá fiðrildi sem þau skrá nafn sitt á, aldur, bókarheiti og blaðsíðufjölda, – vonandi fá flestir minnst fimm fiðrildi til að hengja upp!
- Takmarkið er að hvert barn lesi 5 – 10 bækur (bæði örþunnar og aðeins þykkari)
- Verðlaun eru veitt eftir að 3 bækur, 7 bækur og 10 bækur hafa verið lesnar og í byrjun næsta skólaárs fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sína og síðan verður dregið úr hópi duglegustu lesendanna í hvorum aldursflokki fyrir sig og vegleg verðlaun veitt.