Skráning er hafin fyrir kappróðurinn á Sjómannadaginn. Hvetjum við sem flesta til að taka þátt í keppninni sem hefst laugardaginn 6. júní kl. 14:30. Vegleg verðlaun fyrir fyrstu sætin - Pizzaveisla á Papas ásamt drykkjum fyrir sjö. Einnig verða veitt verðlauna í stráka- og stúlknaflokki í koddaslag, flekahlaupi og kararóðri.
Skráning í síma 426-8400. Netfang: svgrindavik@gmail.com