Hinn hefðbundni dans- og sparifatadagur var í dag hjá 10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur. Hefð er fyrir því að Harpa Pálsdóttir danskennari komi einn morgun rétt undir lok skólaársins og rifji upp með þeim þá dansa sem sem þau lærðu þegar þau voru á miðstigi. Þau mæta í sínu fínasta pússi og dansa á sal frá 8:00-11:00. Er þetta liður í því að undirbúa unglingana félagslega fyrir fullorðinsárin.
Má segja að danskennslan sé ákveðin forvörn. Öll tóku þátt, skemmtu sér konunglega og síðan þegar þau fara að stunda framhaldsskólaböllin þá vita þau að það er alveg hægt að dansa og skemmta sér án vímuefna.
Dömufrí
Herrarnir bjóða upp
Kennararnir Daníel og Lovísa alsæl með daginn.