Nú mæta enn öflugri kraftajötnar á Sjóarann síkáta því undanriðill í keppninni Sterkasti Víkingur í heimi verður haldin í ár. Skipuleggjandi sem fyrr er Magnús Ver Magnússon. Eurosport mætir á svæðið og gerir þátt um keppnina. Alls mæta 12 hraustir víkingar til leiks, þar af átta útlendir keppendur. Fjórir hraustustu Íslendingarnir mæta í þessa svakalegu keppni, þar á meðal Hafþór Júlíus Björnsson.
Keppt verður í sjö greinum bæði laugardag og sunnudag á Sjóaranum síkáta. Keppt verður í uxagöngu, hjólböruakstri, bryggjupolla, trukkadrætti, réttstöðulyftu, drumbalyftu og atlassteinum.
Þetta verður án nokkurs vafa ein lang sterkasta aflraunakeppni sem haldin hefur verið á Íslandi.
Keppendalistinn:
1 Hafþór Björnsson ICE,
2 Mark Felix UK,
3 Dennis Kohlruss GER,
4 Georg Ögmundsson ICE,
5 John Posen USA,
6 Ari Gunnarsson ICE,
7 Rafael Kobylarz POL,
8 Derek DeVaughn USA,
9 Úlfur Orri Pétursson,
10 Rob Frampton UK,
11 Martins Licis LAT
12 Scott Cummine CAo