Framkvæmdir eru hafnar austast á skólalóðinni við Ásabraut að Ungmennagarði. Það er ungmennaráð Grindavíkurbæjar sem hefur unnið undirbúningsvinnuna að garðinum og skilaði ráðið af sér tillögum auk kostnaðar- og framkvæmdaráætlun á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var 28. apríl.
Meðal þeirra tækja sem verða í Ungmennagarðinum eru, aparóla, skýli, útigrill, sófaróla, minigolf, strandblak, trampólín og körfuboltavöllur. Flottar hugmyndir, sem munu nýtast vel fyrir breytilegan aldurshóp.