Kórar Grindavíkurkirkju og Laugarneskirkju halda sameiginlega vortónleika í Grindavíkurkirkju kl 20 í kvöld fimmtudaginn 28. maí. Einsöngvari er Jóhanna Ósk Valsdóttir og stjórnendur Bjartur Logi Guðnason og Arngerður María Árnadóttir.
Aðgangur er ókeypis og allir boðnir hjartanlega velkomnir.
Sungin verða íslensk og ítölsk lög í bland en þess má geta að kórarnir eru að fara í söngferðalag til Ítalíu
Í byrjun júní.