Fimmtudaginn 4. júní kl. 18:00 verður Götuhlaup Sjóarans síkáta 2015 haldið í fyrsta sinn. Hlaupalengd er 5 km. Lagt verður af stað við aðalinngang íþróttamiðstöðvarinnar. Tímataka með flögu. Tölvupóstur með upplýsingum um tíma er sendur til keppenda eftir hlaup og birtur á www.hlaup.is. Keppt verður í flokkum karla og kvenna, 18 ára og eldri og undir 18 ára.
Verðlaun: Vetrarkort í Bláa Lónið.
Hlaupaleiðin: Byrjað við nýja íþróttamiðstöð, hlaupið fram hjá Króki og í Hópshverfi, niður á bryggju og upp Víkurbraut.
Hlaupaleiðina má sjá hér að ofan.
Skráning fer fram á www.hlaup.is. Skráning opin til kl. 22.00 miðvikudaginn 3. júní.
Allar nánari upplýsingar á www.hlaup.is
Þátttökugjald: 1.500 kr. 18 ára og eldri. Ókeypis fyrir yngri en 18 ára.
Grillveisla og ókeypis í sund eftir hlaupið. Einnig verður nýja líkamsræktarstöðin til sýnis.