Hvað gerum við í Lautinni þegar sólin loksins kemur, jú blásum á Sulludag. Mikið drullumallað og sullað og gleðin leyndi sér ekki. Síðan skunduðu allir inn og gæddu sér á nýbökuðum skonsum en þennan dag voru einmitt níu ár frá því að við fluttum í nýtt húsnæði.
Þann 17. maí var svo sett upp vatnsrennibraut í Lautinni þar sem krakkarnir skemmtu sér konunglega við að renna sér niður brekkuna í bleytunni. Mikil gleði og hlátur. Á heimasíðu Lautar má sjá fjölmargar myndir af þessum skemmtilegu uppákomum. Sulludagurinn er hér, en vatnsrennibrautin hér.