Breytingar og endurbætur, á húsnæðinu sem flestir þekkja sennilega sem sundlaugina en mun eftirleiðis þjóna hlutverki líkamsræktarstöðvar, hafa gengið vonum framar og nú glittir undir verklok og formlega opnun. Þá styttist einnig í að sundlaugin opni á ný eftir að skipt var um dúk á lauginni. Unnið er að lokafrágangi laugarinnar.
Eigendur Gym heilsu stefna að því að hafa opið hús í aðstöðunni fimmtudaginn 4. júní næstkomandi milli 17:00-18:30 þar sem bæjarbúar geta komið og skoðað hina nýju stöð. Stefnt er að því að hægt verði að byrja að æfa næsta dag.
Við látum hér fylgja nokkrar myndir frá framkvæmdunum sem teknar voru í dag. Húsið er allt orðið mjög bjart og skemmtilegt eftir að veggirnir sem snúa í suður voru teknir niður og hvít málning orðin allsráðandi. Salirnir tveir eru stórir og ljóst að þetta hús mun bjóða uppá mikla möguleika á sviði heilsueflingar.