Hefur þú komið í Húshólma í Ögmundarhrauni? Í kvöld stendur þér til boða að ganga þangað undir leiðsögn Rannveigar L. Garðarsdóttur. Boðið er uppá rútu kl. 19:00 frá Hópferðum Sævars, Vesturbraut 12 í Reykjanesbæ. Vinsamlegast hafið samband við leiðsögumann í síma 893 8900 sé óskað eftir því að rútan stoppi í Grindavík kl. 19:15 svo gert verði ráð fyrir sætum í rútuna. Kostnaður við rútu er 1.000 kr. Lagt verður af stað frá bílastæði við Suðurstrandarveg kl. 19:30.
Húshólmi er í Ögmunarhrauni sem brann árið 1151. Þar er að finna einar elstu mannvistarleifar á Íslandi. Messað verður í Kirkjulágum, tóftum sem taldar eru vera af kirkju.
Gönguferðin er hluti af Jarðvangsviku Reykjanes jarðvangs.