Geo Hótel Grindavík mun á næstu dögum taka formlega til starfa þar sem félagsheimilið Festi var áður til húsa. Þar verður boðið upp á vandaða gistingu í notarlegu umhverfi, alls 36 herbergi með baði. Fimmtudaginn 28. maí verður opið hús þar sem hótelið verður opið gestum og gangandi milli kl. 16:00 og 19:00. Grindvíkingar eru boðnir sérstaklega velkomnir til að skoða hið fornfræga hús Festi sem nú hefur risið á ný til vegs og virðingar.
Opna húsið er hluti af Jarðvangsviku Reykjanes jarðvangs, sjá nánar hér: Reykjanes Geopark á Facebook.