Sjóarinn síkáti - Fjölskylduleikurinn Hver býr hér? Fjölskylduleikurinn Hver býr hér? verður í tengslum við Sjóarann síkáta líkt og undanfarin ár. Þetta er léttur og skemmtilegur fjölskylduleikur þar sem bæjarbúar eiga að þekkja myndir af átta útidyrahurðum í bænum (2 úr hverju litahverfi), fylla út getraunablaðið og skila í Kvikuna í síðasta lagi mánudaginn 8. júní kl. 12. Glæsileg verðlaun. Þátttaka í fyrra og sló öll met en vinningar eru glæsilegir.
Getraunablaðinu verður dreift í öll hús í vikunni en er einnig hægt að nálgast hér og má prenta út og skila þannig inn.