Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í 10. bekk. Við óskum eftir því að þið takið frá klukkutíma fyrir barnið ykkar sem er að ljúka grunnskólagöngu, í fyrramálið fimmtudagsmorguninn 28. maí kl. 08:00. Mætingin á þennan fund er hluti af því viðhorfi sem verður til umfjöllunar á fundinum.
Þetta verður sameiginlegur fundur með nemendum 10. bekkjar og foreldum/forráðamönnum til að vekja þau til umhugsunar um þá viðhorfsbreytingu sem verður gagnvart vímuefnanotkun, bæði hjá nemendum og foreldrum, þegar nemendurnir hefja nám í framhaldsskóla. Einnig verður farið yfir forvarnir vegna brottfalls nemenda. Þetta er gert í formi fyrirlestra og hópavinnu.
Samkvæmt rannsóknum eru góðir hlutir að gerast sem tengjast vímuefnamálum hjá nemendum GG, ekki síst í 10. bekk. Hins vegar sýna rannsóknir fyrir framhaldsskóla að þar eykst vímuefnaneysla mikið. Rannsókn á meðal framhaldsskólanema frá árinu 2013 (Rannsókn og greining) sýnir að 45% ungmenna í framhaldsskólum hafa orðið ölvuð einu sinni eða oftar síðustu 30 dagana áður en rannsóknin var framkvæmd. Til samanburðar mældist engin áfengisnotkun hjá 10. bekk í Grindavík síðustu 30 dagana fyrir könnunina í vetur. Þessi hópur fer svo í framhaldsskólann í haust. Hvað gerist þá í viðhorfi samfélagsins alls? Hvers vegna slökum við öll á klónni?
Alls skrá 92% 10. bekkjar sig í framhaldsskóla en 60% sem útskrifast. Hvers vegna?
Það virðist sem einhvers konar rof verði hjá 10. bekkingum þegar þau fara yfir í framhaldsskóla. Fyrstu tvö árin í framhaldsskóla eru þeir á ábyrgð foreldra.
Vonandi sjáum við ykkur öll kát og hress.
„Það besta sem þú eyðir í barnið þitt er tími" (Arnold Glasow).
Forvarnarteymi Grindavíkurbæjar