Á myndinni má sjá meistaraflokk kvenna í knattspyrnu taka sigurhringinn eftir að hafa lagt Fjölni að velli í 1. deild kvenna í knattspyrnu um helgina 2-1 í hörku leik. Óhætt er að segja að stelpurnar byrji tímabilið vel, eru komnar áfram í bikarnum og þrjú stig komin í hús eftir fyrsta leik í 1. deildinni.
Margrét Albertsdóttir kom Grindavík yfir strax á 5. mínútu eftir glæsilegan undirbúning Sashana Carolyn Campbell sem er nýr leikmaður Grindavíkur frá Jamaíka. Grindavík hafði undirtökin en gekk illa að skapa sér færi. Campbell slapp ein í gegn snemma í seinni hálfleik en missti boltann of langt frá sér. Gegn gangi leiksins náði Fjölnir að jafna úr skyndisókn á 71. mínútu. En Anna Þórunn Guðmundsdóttir tryggði Grindavík sigurinn með glæsilegu skoti eftir góðan undirbúning Guðrúnar Bentínu Frímannsdóttur en sigur þeirra gulklæddu var fyllilega verðskuldaður.
Grindavíkurliðið lofar góðu fyrir sumarið undir stjórn Ægis Viktorssonar.