Fuglasýning í boði 7. bekkjar var í náttúrufræðistofunni í dag. Nemendur í 7. bekk hafa verið að vinna verkefni um fugla á Íslandi og sýndu þau afrakstur þeirrar vinnu í dag ásamt fjölda uppstoppaðra fugla og eggja sem til eru hér í skólanum. Mjög skemmtilegt framtak. Þórunn Alda Gylfadóttir kennari hélt utan um þetta verkefni.